.

Ert þú að nærast í takt við æfingaálag?

Tímabilaskipt næring er lykillinn að íþróttaárangri.

✓ Prófaðu frítt í 14 daga   ✓ Engin skuldbinding

Sækja í App Store Sækja á Google Play
QR kóði sem opnar Nutreleat appið í símanum

Í tölvu? Skannaðu með símanum.

Ekki með símann við höndina?
Fáðu hlekkinn sendan í tölvupósti:

Senda mér hlekkinn →
Nutreleat appið í síma

Ert þú að nærast í takt við æfingaálag?

Tímabilaskipt næring er lykillinn að íþróttaárangri.

✓ Prófaðu frítt í 14 daga
✓ Engin skuldbinding

Sæktu appið hér 👇

Nutreleat appið í síma
Afreksmiðstöð Íslands - Team Iceland

NUTRELEAT × AMÍ

Notað í starfi Afreksmiðstöðvar Íslands (Team Iceland) með landsliðs- og afreksíþróttafólki

Afreksmiðstöð Íslands - Team Iceland

NUTRELEAT × AMÍ

Notað í starfi Afreksmiðstöðvar Íslands (Team Iceland) með landsliðs- og afreksíþróttafólki

Ólíkir dagar, ólíkar þarfir

Næringarþörfin sveiflast með æfingunum

Á erfiðasta æfingadegi vikunnar getur kolvetnaþörfin verið rúmlega tvöfalt meiri en á hvíldardegi. Samt sjáum við oft íþróttafólk borða það sama eða fylgja sömu viðmiðum dag eftir dag. Appið leysir þetta með litakóða þar sem hver dagur fær lit eftir álagi: því meira álag, því hærri þörf fyrir kolvetni.

●  Rauður

KOLVETNAÞÖRF

    

Hvíldardagur

●  Gulur

KOLVETNAÞÖRF

    

Miðlungs erfiður dagur

●  Grænn

KOLVETNAÞÖRF

    

Erfiður dagur

●  Gylltur

KOLVETNAÞÖRF

    

Mjög erfiður dagur

Appið gefur hverjum degi lit út frá æfingunum þínum, og uppskriftir og máltíðir fá sama litakóða út frá kolvetnamagni.
Þú sérð strax hvað hentar deginum.

Nálgun á næringu sem hámarkar árangur

Einfalt í framkvæmd

Svona virkar appið, í þremur skrefum

1

Settu inn æfinguna

Búðu til næringarplan fyrir hverja tegund æfingadags og settu æfinguna inn í planið. Appið gefur deginum lit og ráðlögð næringarviðmið út frá álaginu.

Næringarplön í Nutreleat appinu

2

Byggðu planið

Settu saman máltíðir eða veldu litakóðaðar uppskriftir sem passa álagi dagsins, í takt við viðmiðin.

Litakóðaðar uppskriftir í Nutreleat appinu

3

Raðaðu á vikuna

Stilltu hvert plan á réttan vikudag eftir æfingaáætluninni þinni. Heimaskjárinn fyllist sjálfkrafa og þú sérð alltaf hvað dagurinn kallar á.

Vikuáætlun í Nutreleat appinu

Líka í appinu

Strikamerkjaskanni

Flýtir fyrir allri skráningu. Gagnagrunnurinn yfir forpökkuð matvæli aðgengileg í búðum hérlendis stækkar á hverjum degi.

Strikamerkjaskanni í Nutreleat appinu

Innkaupalisti

Skalaðu uppskriftir og bættu réttu magni af hráefnum á listann með einum smelli.

Innkaupalisti í Nutreleat appinu

Prófa frítt í 14 daga

Reynsla notenda

Íþróttafólk finnur muninn

Ásdís Þóra Böðvarsdóttir

“

Ég finn mikinn mun á afköstum og endurheimt eftir að ég fór að næra mig í takt við æfingaálagið.

Áður var ég að borða frekar svipað alla daga, sama hvernig æfingaálagið var, og varð því oft orkulaus undir lok erfiðari æfinga, en núna finn ég fyrir meiri orku, betra úthaldi, meiri krafti og minni þreytu á milli æfinga.

Ásdís Þóra Böðvarsdóttir   Knattspyrnukona


“

Algjör game changer í að átta mig á hversu mikla næringu ég þarf miðað við æfingarnar mínar.

Var aðeins treg til að byrja að nota það, hrædd um að það yrði tímafrekt að setja inn matvæli, en fljót að komast að því að svo var ekki. Og árangurinn kom svo í kjölfarið, ekki bara í sportinu, heldur líka bætt melting og meiri orka til að sinna fjölskyldu og vinnu utan æfinga.

Steinunn Þórðardóttir á fjallastíg

Steinunn Þórðardóttir

Sjúkraþjálfari og hlaupari


“

Ég var alltaf að miða við sömu orkuinntöku og sömu hlutföll, sama hvernig æfingardagurinn leit út.

Litakóðakerfið gerir mér auðvelt að sjá hvort máltíðir dagsins séu í samræmi við orkuþörfina hverju sinni. Mér finnst sérstaklega gott hversu auðvelt er að skrá æfingar og sjá næringarviðmiðin breytast í samræmi við þær.

Sóley Kjerúlf

Sóley Kjerúlf

Hjólreiðakona


“

Hjálpar mér mjög mikið að geta séð litakóðana á máltíðunum og velja uppskriftir eftir því hvernig æfingaálag dagsins er.

Eftir að appið kom svo inn í jöfnuna var miklu auðveldara að setja saman máltíðir og skipuleggja daginn.

Björgvin Hallgrímsson í Mýrdalshlaupinu

Björgvin Hallgrímsson

Hlaupari


“

Traustvekjandi að vita að baki appsins standa íþróttanæringarfræðingar með mikla reynslu.

Ég æfi oft í viku, vinn mikið og held uppi heimili og því þægilegt og auðvelt að nýta sér Nutreleat appið, fyrir yfirsýn yfir máltíðirnar og til innblásturs með uppskriftum.

Dögg Guðmundsdóttir

Klínískur næringarfræðingur


“

Einstaklega vel hannað app sem hjálpar mér að miða mataræði mitt útfrá æfingaálagi hverju sinni.

Geggjaðar uppskriftir sem hjálpa mér að ná markmiðum mínum og að sjá til þess að ég hafi næga orku á æfingum.

Þór Albertsson

Mastersnemi í íþróttanæringu

Lilja Guðmundsdóttir, íþróttanæringarfræðingur

Á bak við appið

Hannað af íþrótta­næringar­fræðingi

Lilja Guðmundsdóttir, íþróttanæringarfræðingur M.Sc. og fyrrum landsliðskona í samkvæmisdönsum, hefur unnið með íþróttafólki frá 2020, bæði í einstaklingsráðgjöf og með íþróttafélögum og sérsamböndum. Hún starfar einnig hjá Afreksmiðstöð Íslands (AMÍ), Team Iceland, þar sem hún sinnir næringarráðgjöf fyrir landsliðs- og afreksíþróttafólk.

Markmiðið með appinu er einfalt: að gera íþróttafólki kleift að nærast í takt við æfingaálag á einfaldan og praktískan hátt.

Tilbúin/n að nærast í takt við æfingaálagið?

Sæktu appið og prófaðu frítt í 14 daga. Engin skuldbinding.

Mánaðaráskrift

~3.490 kr.

á mánuði.
Segðu upp hvenær sem er.

Ársáskrift · 50% afsláttur

~20.940 kr.

á ári.
Jafngildir ~1.745 kr. á mánuði.

ATH! Verðin birtast í dollurum í App Store og í evrum á Google Play.

Byrjaðu á 14 daga fríum prufutíma 👇

Algengar spurningar

Spurt og svarað

Sæktu appið og prófaðu frítt í 14 daga 👇