Nálgun á næringu sem hámarkar árangur
Appið þar sem viðmiðin fylgja æfingaálaginu
Þór Albertsson,
mastersnemi í íþróttanæringu
,,Einstaklega vel hannað app sem hjálpar mér að miða mataræði mitt útfrá æfingaálagi hverju sinni. Geggjaðar uppskriftir sem hjálpa mér að ná markmiðum mínum og að sjá til þess að ég hafi næga orku á æfingum."
Ásdís Þóra Böðvarsdóttir, knattspyrnukona
,,Appið hefur reynst mér ótrúlega vel, ég finn mikinn mun á afköstum og endurheimt eftir að ég fór að næra mig í takt við æfingaálagið. Áður var ég að borða frekar svipað alla daga, sama hvernig æfingaálagið var, og varð því oft orkulaus undir lok erfiðari æfinga, en núna finn ég fyrir meiri orku, betra úthaldi, meiri krafti og minni þreytu á milli æfinga.
Það sem mér finnst algjör snilld er að geta búið til næringarplön fyrir hvern dag eftir æfingaálagi. Einfalt, þægilegt og gagnlegt – ég mæli klárlega með þessu fyrir íþróttafólk sem vill bæta orkustig, afkastagetu og endurheimt."
Dögg Guðmundsdóttir, klínískur næringarfræðingur
,,Ég æfi oft í viku, vinn mikið og held uppi heimili og því þægilegt og auðvelt að nýta sér Nutreleat appið, fyrir yfirsýn yfir máltíðirnar og til innblásturs með uppskriftum. Sem klínískur næringarfræðingur er traustvekjandi að vita að baki appsins standa íþróttanæringarfræðingar með mikla reynslu."