Ókeypis fyrirlestur á netinu

Æfingaálagið er breytilegt milli daga. Fylgir næringin með?

Tímabilaskipt næring í framkvæmd, fyrir íþróttafólk, þjálfara og virka einstaklinga.

Miðvikudaginn 28. október kl. 20:00

Á Zoom · um 50-60 mínútur · ókeypis

+ 30-45 mínútna kennsla á Nutreleat appið á eftir, fyrir þau sem vilja vera lengur

Skrá mig frítt →

Efnið

Í fyrirlestrinum förum við yfir

📈

Af hverju sömu næringarviðmið eiga ekki við alla daga

Hvað breytist í þörfunum á milli hvíldardags og erfiðs æfingadags, og af hverju það skiptir máli.

🗓️

Hvað er tímabilaskipt næring?

Nálgunin sem afreksíþróttafólk nýtir, útskýrð á mannamáli.

⚠️

Merkin sem flestir missa af

Hvað gerist þegar næringin fylgir ekki álaginu, og hvernig þekkir þú þau í tæka tíð.

📱

Frá fræðum yfir í framkvæmd

Hvernig þú innleiðir tímabilaskipta næringu á praktískan hátt. Í lokin kynnum við Nutreleat appið og fyrir þau sem vilja vera lengur er 30-45 mínútna kennsla á appið.

Fyrri fyrirlestrar

Umsagnir um aðra fyrirlestra Lilju

Lilja hefur haldið fjölda fræðslufyrirlestra fyrir íþróttafélög, fyrirtæki og almenning.

Fræðslufundur fyrir foreldra · Víkingur 2024


“

Eftir 20 plús ár í þjálfun hef ég setið marga svona fundi en Lilja setur þetta fram á skiljanlegan og aðgengilegan hátt.

Mæli hiklaust með að nýta hennar krafta í þessu málefni hvort það sé fyrir einstaklinga eða félög.

Halldór Harri Kristjánsson

Yfirþjálfari handknattleiksdeildar Víkings

Næringarátak starfsmanna · Icelandair 2022


“

Hún er góður fyrirlesari og mikil fagmanneskja.

Lilja hjá Nutreleat fór með okkur í gegnum næringarátak sem var mjög fróðlegt og skemmtilegt.

Jóna Björg Jónsdóttir

Health Manager, Icelandair

Íþróttanæring 101 · 2025


“

Það var mér innblástur að hlýða á þig og ég kem mun fróðari frá kvöldinu.

Agnes Helga Bjarnadóttir

Þátttakandi í Íþróttanæringu 101

Fyrir hverja?

Fyrir alla sem vilja nærast í takt við æfingarnar

Fyrirlesturinn er ætlaður einstaklingum 18 ára og eldri.

🏃‍♀️

Íþróttafólk

Sem vill fá meira út úr æfingum og keppni og jafna sig betur á milli æfinga.

📋

Þjálfarar

Sem vilja styðja leikmenn sína með næringu sem fylgir æfingaálaginu.

🏋️

Virkir einstaklingar

Sem æfa reglulega, hvort sem það er hlaup, ræktin eða hópíþrótt, og vilja nærast betur í kringum æfingarnar.

Reynslan

Þegar næringin fer að fylgja álaginu

Ásdís Þóra Böðvarsdóttir

“

Ég finn mikinn mun á afköstum og endurheimt eftir að ég fór að næra mig í takt við æfingaálagið.

Áður var ég að borða frekar svipað alla daga, sama hvernig æfingaálagið var, og varð því oft orkulaus undir lok erfiðari æfinga, en núna finn ég fyrir meiri orku, betra úthaldi, meiri krafti og minni þreytu á milli æfinga.

Ásdís Þóra Böðvarsdóttir   Knattspyrnukona


“

Algjör game changer í að átta mig á hversu mikla næringu ég þarf miðað við æfingarnar mínar.

Og árangurinn kom svo í kjölfarið, ekki bara í sportinu, heldur líka bætt melting og meiri orka til að sinna fjölskyldu og vinnu utan æfinga.

Steinunn Þórðardóttir

Steinunn Þórðardóttir

Sjúkraþjálfari og hlaupari


“

Áður var maður algjörlega á bensínljósinu eftir erfiðu og löngu æfingardagana.

…en eftir að ég fór að leggja meiri áherslu á næringuna … fór orkan að verða miklu meiri og fyrr tilbúinn í næstu æfingu.

Björgvin Hallgrímsson

Björgvin Hallgrímsson

Hlaupari


“

Ég var alltaf að miða við sömu orkuinntöku og sömu hlutföll, sama hvernig æfingardagurinn leit út.

Samstarfið við Lilju hefur hjálpað mér gríðarlega mikið. Hún hefur kennt mér að næra mig í takt við æfingarálagið.

Sóley Kjerúlf

Sóley Kjerúlf

Hjólreiðakona

Lilja Guðmundsdóttir, íþróttanæringarfræðingur

Fyrirlesari

Lilja Guðmundsdóttir

Íþróttanæringarfræðingur M.Sc.AMÍ · Team IcelandStofnandi Nutreleat

Fyrrum landsliðskona í samkvæmisdönsum. Lilja hefur unnið með íþróttafólki frá 2020, bæði í einstaklingsráðgjöf og með íþróttafélögum og sérsamböndum, og sinnir næringarráðgjöf fyrir landsliðs- og afreksíþróttafólk hjá Afreksmiðstöð Íslands.

Skráning

Skráðu þig frítt

Miðvikudaginn 28. október kl. 20:00, á netinu (Zoom). Þú færð hlekkinn sendan í tölvupósti strax eftir skráningu og áminningu áður en við byrjum.

Ókeypis. Þú getur afskráð þig af póstlistanum hvenær sem er.

Spurt og svarað