6 vikna netnámskeið fyrir ungt íþróttafólk og annað íþróttafólk sem er að stíga sín fyrstu skref þegar kemur að íþróttanæringu.


Aðferð sem byggir á vísindalegri nálgun, hönnuð og þróuð af löggiltum íþróttanæringarfræðingum (M.Sc.).

Ekki er hægt að skrá sig núna! Við opnum fyrir skráningar eftir:

00

DAYS

00

HOURS

00

MINS

00

SECS

Fá tilkynningu þegar skráningar opna og aðgang að ÓKEYPIS vefbók um næringu eftir æfingar

Það að stunda sína íþrótt af kappi getur verið krefjandi...

Það er að gríðarlega mörgum þáttum að huga og ég þarf ekkert að segja þér að næringin er ein af þeim mikilvægu ✅

 

Þetta viðfangsefni er ekkert grín í nútímasamfélagi þar sem:

 👉 Upplýsingaflæðið í tengslum við íþróttanæringu virðist vera endalaust og erfitt getur reynst að greina mýtur frá staðreyndum

👉 Hraðinn er mikill og lítill tími gefst til matarundirbúnings

👉 Valmöguleikarnir eru endalausir og hausverkurinn sem fylgir því að ákveða 'hvað maður eigi nú að borða' á miserfiðum æfingadögum verður mikill

 

Margt íþróttafólk sem við höfum unnið með upplifir að tímaleysi sé aðal ástæða þess að það sé ekki að ná að næra sig í samræmi við þarfir fyrir og eftir æfingar EN...

...reynslan hefur sýnt mér að RAUNVERULEGU ástæðurnar fyrir því eru yfirleitt að 👇

❌ Það er ekkert plan til staðar

❌ Það eru engar 'go-to máltíðir' til taks

❌ Það er ekki með skýra sýn á HVAÐA næring hentar í ólíkum aðstæðum

Lausnin er í raun mjög einföld

Við þurfum einfaldlega að koma okkur upp plani! 💪


Þú hefur eflaust heyrt setninguna 'work smarter, not harder' og það er nákvæmlega það sem við ætlum að gera 👇

✅ Við ætlum að leggja skotheldan grunn að þinni íþróttanæringu sem byggir á vísindalegri nálgun og tryggja að þú sért að fá inn rétta næringu miðað við æfingaálag, tímasetningu æfinga og þarfir hverju sinni!


Af því að staðreyndin er sú að ef þú ert ekki að næra þig í samræmi við vinnukröfur í þinni íþróttagrein og æfingaálag þá eru yfirgnæfandi líkur á því að:

❌ Þú munir ekki ná að hámarka orkuna (þín afköst) á æfingum / í keppnum

❌ Þú munir þurfa lengri tíma til að jafna þig (í endurheimt) eftir æfingar / keppnir

❌ Meiðslatíðni aukist


Eins og við vitum þá varir íþróttaferillinn ekki að eilífu - þannig því fyrr sem þú neglir niður þína íþróttanæringu - því ólíklegri ertu til að eyða dýrmætum tíma 

Þetta netnámskeið mun gera þér kleift að skilja... 

...HVAÐ, HVENÆR OG HVERSU MIKIÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ VERA AÐ BORÐA Á MISERFIÐUM ÆFINGADÖGUM TIL AÐ:

💥 Auka orku og afköst á æfingum 

Svo þú getir hætteyða óþarfa tíma með því að fara illa nærð/ur inná æfingar og afkasta minna en þú myndir annars gera!

💥 Bæta og flýta fyrir endurheimt 💥

Svo þú getir hámarkað uppbyggingu og viðgerðir á vöðvum ásamt því að fara í góðu standi inná næstu æfingu og þar með minnkað líkur á meiðslum!

💥 Verða sá íþróttamaður eða sú íþróttakona sem þú sérð fyrir þér 💥

Og þar með fá að vinna við eða gera það sem þú elskar!

Brot af umsögnum frá því flotta íþróttafólki sem við höfum unnið með finnurðu hér  ⬇️

Skoða umsagnir

Ferlið virkar svona

1️⃣ Fræðsla

Þú færð aðgang að innra svæði þar sem opnast fyrir viðfangsefni sem inniheldur 1-2 rafræna fyrirlestra í HVERRI viku í 6 vikur. Í hverri viku tökum við fyrir ákveðnar áherslur sem færa þig skrefinu nær því að leggja grunninn að þinni íþróttanæringu.       

                                                          

2️⃣ Framkvæmd

Hverjum fyrirlestri fylgja verkefni sem eru sett þannig upp að þú byrjar strax að nýta þér fræðsluna úr fyrirlestrunum og hrinda henni í framkvæmd. Það er nefnilega ekki nóg að fræðast bara - við þurfum líka að byrja að framkvæma! Fyrirlestrunum fylgja því verkefnahefti á rafrænu formi sem þú getur prentað út eða fyllt út rafrænt.

3️⃣ Stuðningur

Ef einhverjar spurningar eða vangaveltur koma upp meðan á ferlinu stendur er hægt að varpa fram spurningum inná lokuðum FB hópi og fá ítarleg svör. 





Yfirlit yfir viðfangsefnin

Í fyrstu vikunni lærirðu m.a.:

✔️ Inná grunnstólpana 3 og hvernig þeir hafa áhrif á þína frammistöðu
✔️ Hversu oft við mælum með að þú sért að borða yfir daginn og af hverju

✔️ Aðferðir til að bæta svefninn og viðhalda reglulegu máltíðamynstri

Í annarri vikunni lærirðu m.a.:

✔️ Úr hvaða matvælum þú færð hvaða orkuefni 
✔️ Hvernig þú setur saman máltíðir yfir daginn sem styðja við jafna orku og veita þér nauðsynleg orku- og næringarefni

Í þriðju vikunni lærirðu m.a.:

✔️ Inná hvað og hvenær þú ættir að borða fyrir æfingar fyrir sem besta orku
 ✔️ Inná hvað og hvenær þú ættir að borða eftir æfingar fyrir sem besta endurheimt

Í fjórðu vikunni lærirðu ma.:

✔️ Inná það hversu mikið þú ættir að drekka yfir daginn

✔️ Hvers konar vökva þú ættir að velja í mismunandi þjálfunaraðstæðum

✔️ Aðferðir sem hjálpa þér að muna eftir vökvanum

Í fimmtu vikunni lærirðu m.a.:

✔️ Inná orkukerfi líkamans og hvaða hlutverki þau gegna þegar kemur að þjálfun og hraustum líkama

✔️ Hvernig þú ættir að raða á diskinn þinn og setja máltíðir saman miðað við æfingaálag þann daginn

Í sjöttu vikunni lærirðu m.a.:

✔️ Um næringarefni sem gegna mikilvægu hlutverki í líkamanum og í tengslum við þjálfun

✔️ Úr hvaða matvælum þú færð þessi næringarefni

✔️ Í hvaða tilfellum við mælum með að þau séu tekin inn á formi fæðubótarefna


*BÓNUSAR*

Þar að auki færðu aðgang að:

✔️ Auka fyrirlestri þar sem við förum í gegnum nestis- & matarundirbúning

✔️ Uppskriftabanka í appinu sem inniheldur yfir ~100 uppskriftir og hugmyndir að máltíðum sem henta á mismunandi tímum yfir daginn 

Prógrammið ER fyrir þig ef:


Þú stundar þína íþrótt af kappi og vilt ná langt í þinni grein

✅ Þú hefur áhuga á næringu í tengslum við þína íþrótt og vilt leggja grunninn að íþróttanæringunni

✅ Þú ætlar að leggja inn vinnunna á þessu námskeiði og gera þetta vel

✅ Þú ert 14 ára eða eldri (ATH! Ef undir 18 ára þá er mikilvægt að foreldar taki þátt, sjá meira neðst á síðunni)

Prógrammið er EKKI fyrir þig ef:


❌ Þú ert ekki að stunda neina íþrótt eða hefur takmarkaðan áhuga á þeirri sem þú stundar

❌ Þú hefur lítinn áhuga á næringu í tengslum við þína íþrótt 

❌ Þú hefur ekki áhuga á að leggja inn vinnuna á þessu námskeiði

❌ Þú ert undir 18 ára og hefur ekki stuðning og/eða leyfi foreldra til að taka þátt

Drögum þetta saman


Þegar þú skráir þig á þetta 6 vikna netnámskeið færðu aðgang að fyrirlestrum sem gera þér kleift að leggja grunninn að þinni íþróttanæringu. Þar að auki færðu aðgang að:

☑️ *Bónus* fyrirlestri þar sem við förum vel yfir nestis- & matarundirbúning

☑️ Yfir 100 uppskriftum og hugmyndum að máltíðum eða matvælum á mismunandi tímum yfir daginn

☑️ Verkefnahefti sem taka ALLT sem þú lærir á námskeiðinu og hjálpa þér að hrinda þeim í framkvæmd 

☑️ Aðgang að 'spurt & svarað' inná FB hópnum meðan á þessum 6 vikum stendur - þar sem þú getur varpað fram spurningum og vangaveltum sem kunna að koma upp og fengið ítarleg svör við þeim

...fyrir aðeins 30.000kr. 20.000 kr. (Beta-hópur)

Hún á stóran þátt í að koma mér á þann stað sem ég er í dag

,,Ég get svo innilega mælt með Lilju; hún er eldklár og frábær leiðbeinandi - ekki bara í næringu heldur bara í heilbrigðu líferni yfir höfuð! Hún á stóran þátt í að koma mér á þann stað sem ég er á í dag." 

-Matthildur Óskarsdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í bekkpressu

Ég vil ekki að neitt sé óskýrt þannig hér eru svör við algengum spurningum


Ef svo ólíklega vill til að þú fáir ekki svar við spurningunni þinni skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur á [email protected]m svo að við getum aðstoðað þig! 💪)

Almenna notendaskilmála Nutreleat ehf. geturðu kynnt þér HÉR.